💻 Forritun og útfærsla
~20 klstMarkmið
Liður 3 snýst um að þróa fullbúna forritunarlausn og skjámyndakerfi. Þetta felur í sér að útfæra forritið miðað við virkni úr fyrri liðum og ljúka við skjámyndahönnun.
Nú er komið að því að breyta hugmyndum úr L1 og teikningum úr L2 í raunverulegan kóða og virk skjámyndakerfi. Þetta er stærsti hluti verkefnisins — gefðu þér tíma.
💡 Ábending: Skrifaðu athugasemdir í kóðann — það hjálpar þér og kennara að skilja hvað er að gerast. Góður kóði skýrir sig sjálfan, en athugasemdir gera hann enn betri.
Forritun
Forritið þarf að uppfylla kröfurnar úr L1 og nota teikningarnar úr L2 sem grunn:
✓
Fullbúið forrit sem uppfyllir allar kröfur
✓
Athugasemdir í kóða sem útskýra virkni
✓
Skipulögð forritun — læsileg og vel uppsett
Skjölun
✓
Skjöl sem lýsa hvernig forritið virkar
✓
Listi yfir breytur og markersa
✓
Útskýring á flóknum hlutum
Skjámyndahönnun
Skjámyndir þurfa að vera fullbúnar og virka með forritinu:
✓
Fullbúnar skjámyndir í Galileo
✓
Allir hnappar og stýringar virka
✓
Upplýsingar sýndar á skýran hátt
✓
Markersar tengdir rétt við forrit
⚠️ Mundu: Exporta úr EasySoft og Importa í Galileo þegar þú bætir við eða breytir markerum. Annars munu skjámyndirnar ekki virka rétt.
Skil
📦 Skila:
- .e80 skrá – kóði með athugasemdum
- PDF – skjámyndir og skjölun
- Greinargerð – áskoranir sem komu upp og hvernig þú leystir þær