✏️ Teikningar og hönnun

~20 klst

Markmið

Liður 2 gengur út á að þú hannir og leggir fram grunnteikningar og hugmyndir að skjámyndakerfi sem tengist verkefninu.

Þessi liður leggur áherslu á skipulag og sjónræna framsetningu á því hvernig kerfið mun líta út og tengjast, án þess að skila fullbúnum lausnum. Þetta er "blaðran" sem þú byggir á í L3.

💡 Ábending: Teikningar þurfa ekki að vera fullkomnar — markmiðið er að gefa skýra mynd af því hvernig verkefnið verður framkvæmt. Skýr og fagleg framsetning er lykilatriði.

Teikningar fyrir tengingar

Skila þarf teikningum sem sýna hvernig kerfið verður tengt saman:

Tengiteikningar: Hvernig íhlutir og tæki tengjast
Rafrásarteikningar: Grunnuppsetning á rásum (ef við á)
Töflur/netbakkar: Skipulag kapla og tenginga (ef við á)

Skjámyndahugmyndir

Skila þarf grunnhugmyndum að skjámyndakerfinu:

Skipulag: Hvernig viðmót notandans lítur út (hnappar, skjáir, skynjarar)
Virkni: Tilgangur skjámynda og tenging við forrit

Lýsing á virkni

Í stuttri greinargerð þarf að lýsa:

Hvernig notendur stjórna kerfinu
Hvaða upplýsingar verða sýndar
Upplýsingaflæði (innsláttur og úttak)
Uppbygging á "markerum"

Skil

📦 Skila í PDF-sniði:

  1. Tengiteikningar – grunnuppsetning á öllum tengingum
  2. Skjámyndahönnun – teikningar/útlínur með lýsingu
  3. Greinargerð – stutt skýring á virkni skjámyndakerfis
  4. Tengilýsing – útskýring á samskiptum kerfisins