📋 Skipulag og undirbúningur
~20 klstMarkmið
Liður 1 snýst um að þú setjir fram heildstæða áætlun fyrir lokaverkefnið þitt. Þú þarft að skilgreina hvað þú ætlar að gera, hvernig þú ætlar að ná því fram, og hvernig verkefnið verður uppbyggt.
Þetta er grunnurinn að öllu verkefninu — góð áætlun í byrjun sparar þér mikinn tíma síðar. Hugsaðu þetta sem "vegvísi" sem þú getur fylgt í gegnum L2, L3 og L4.
Verkefnakröfur
1. Verkefnalýsing
Skrifaðu stutta lýsingu á verkefninu þar sem fram kemur:
2. Skipulag forrits (flæðirit)
Skila þarf flæðiriti eða sambærilegri myndrænnri framsetningu:
3. Tímaskipulag
Búðu til grófa tímalínu:
4. Skýring á nálgun
Útskýrðu hvernig þú sérð forritið virka frá byrjun til enda, miðað við þá virkni sem verkefnið krefst.
Skil
📦 Skila í PDF-sniði:
- Titill verkefnis
- Verkefnalýsing og markmið
- Flæðirit eða myndræn framsetning
- Tímalína og skýring á nálgun
Mikilvægt að hafa í huga
⚠️ L1 snýst EKKI um að forrita eða teikna fullmótað forrit.
Markmiðið er að setja fram skýra og skipulagða hugmynd sem hægt er að byggja á í næstu liðum. Skýr og vel uppsett lýsing er lykilatriði — þetta er grunnurinn sem þú byggir á.